Össur Hamas-t

Afhverju taka vinstrimenn alltaf upp málstað Hamas og Palestínumanna? Hversvegna er andúð þeirra svo mikil í garð Ísrael? Afhverju hafa Össur og Ömmi ekki beitt sér vegna ástandsins á Sýrlandi eða annarstaðar í heimi? Afhverju " Palestína "?
mbl.is Geti talað máli Palestínumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" hið friðsama Islam "

Þetta er lýsandi um ávöxt Islam hvar sem hann er. Hér verður saklaust fólk og stofnannir fyrir öfgaárásum múslima vegna einhvers myndskeiðs sem hæðir múhameð " spámann " Þessu tré hefur nú verið plantað í Reykjvavík í Hlíðunum í nafni friðar og kærleika. Nei gott tré gefur ekki af sér góðan og vondan ávöxt,  " Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum? " Hvar er fyrirgefningin og kærleikurinn? Á Íslandi og víða um heim er Jesús Kristur og fylgjendur Hans hæddir, í myndum og máli, með athöfnum og áróðri en ávöxtur Kristninnar er einskær góðvild og friðsemi við alla menn og kennir mönnum að elska náungan eins og sjálfan sig. Eins og Jesús sjálfur á krossi sagði " Faðir fyrirgef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gjöra. "
mbl.is Ráðist á sendiráð í Súdan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af jafnrétti og Fiskiðjunni

 Myndir af fríðum konum sem störfuðu í Fiskiðjunni í Vestmannaeyjum til fjölda ára prýða nú norðurhlið húsins. Allar hafa þær án efa unnið til þess að vera sæmdar heiðrinum. Þetta var góð hugmynd og flott framkvæmd. En í ljósi þeirrar jafnréttis ummræðu sem er í þjóðfélaginu, má eflaust deila um hvort t.d. menn eins og Engli í Fiskiðjunni sem tók fyrstu skóflustunguna, Gísli Þorsteinsson og Björgvin á Hvoli hefðu ekki átt að vera á milli þessara fögru kvenna til að jafna kynjahlutfallið? Allir mætir menn sem svo sannalega settu svip sinn á störf og uppbyggingu þessarar miklu fiskvinnslustöðvar. Spurning hvort þetta standist jafréttislög? Þetta er nú meira í gamni sagt en alvöru. Oft er þó erfitt að greina milli kvennréttinda og jafnréttinda. En þrátt fyrir allt þá erum við Íslenskir karlmenn og neitum að láta bjóða okkur hvað sem er...

Sigra skaltu illt með góðu

Uppreisn, ofsi og óstjórn getur ekki af sér frið og sátt. Ekki ætla ég að verja Rússneska réttarkerfið en var við öðru að búast? Stúlkurnar hefðu átt að vita hvað þær voru að kalla yfir sig. Hér á Íslandi og víðar rísa upp stjórnleysingjar, listamenn og samtök til að lýsa yfir stuðningi við svo kallað "tjáningarfrelsi" og mannréttindi. Fólk sem spillti æsku síns tíma sem fyrirmynd hennar. Þetta fólk lætur sér fátt um mannréttindi finnast, nema þegar það hentar þeirra lísskoðunum og viðhorfum. Um hvað er þá baráttan? Að tjá sig með því að ráðast inná staði sem eru öðrum er kærir og helgir með truflun og ofsa og gera lítið úr trú og siðum annarra, hlýtur að teljast til óheilbrigðrar tjáningar. Þetta mannréttinda spjall nær ekki lengra en nefið á flestum. Að ná fram réttindum með því að brjóta gegn öðrum og hugsa eingöngu um eigin hagsmuni, getur aldrei borið góðan ávöxt. Árangur næst með því að tileinka sér það sem Heilög Ritning kennir " það sem þið viljið að aðrir menn gjöri yður það skulu þér og þeim gjöra."


mbl.is Pussy Riot sakfelldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BÍL og Snorri í Betel

Það heyrðist ekki mikið í BÍL til stuðnings Snorra í Betel þegar honum var sagt upp störfum á dögunum fyrir að tjá sig, enda Snorri kannski ekki meðlimur í kaffi latte listamanna-elítunni í 101. Ekki komu heldur fulltrúar kennarasambandsins fram Snorra til stuðnings og það sem verst er hans eigin trúbræður..

Á sama tíma og sódómískar skrúðgöngur með draghörpuslætti er sýndur sómi, vex and-kristni á Íslandi. Risið er upp gegn öllu því sem heitir Guð og helgur dómur. Þetta lýsir best hversu umræðan er hlutdræg og öfugsnúin. Allt er öfugt að verða í þessu þjóðfélagi. Gott er illt og illt er gott, ljós er myrkur og myrkur ljós.

Ef einhver vitnar í Orð Guðs og Heilagar Ritningar er hann fordómafullur öfgamaður með haturfullan boðskap. En ef uppreisnar pönk píur í Rússlandi haga sér með ósæmandi hætti og kalla meðvitandi yfir sig ákærur, rísa upp áhyggjufullir anarkistar á Íslandi til stuðnings systrum sínum og vilja þær lausar úr haldi. Á sama tíma líður saklaust fólk um heim allan í járngreipum öfgafullra uppreisnarmanna og blóði fórnarlamba er úthellt daglega. Fyrir hverja eru mannréttindi?


mbl.is Vilja Pussy Riot lausar úr haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur giftast og menn kvænast

Höfundur fyrsta hjónabandsins er Guð sjálfur samkvæmt Heilagri Ritningu. Hann gjörði þau karl og konu og sagði þau tvö skulu verða eitt hold......margfaldist og uppfyllið jörðina... Hann á höfundaréttinn og hugmyndafræðina á bak við hjónabandið. Þessa útgáfu blessaði Guð. Aðrar og breyttar útgáfur hljóta að teljast brot á höfundarétti, veit ekki til þess að hjónabandið sé orðið "puplic domain "
mbl.is Fyrsta gifting samkynhneigðra hjá Siðmennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskup sé maður fastheldinn við hið áreiðanlega orð.

Agnes telur það stóran áfanga fyrir kirkjuna að nú muni kona gegna embætti biskups.. Hvers vegna spyr ég? Stór áfangi í hvaða máli? skiptir að kona gegni þessu embætti frekar en Karl? Það er eins og kirkjan sé í stríði við Guð sjálfan. Er tilgangur kirkjunnar ekki skýr frá upphafi, þ.e. að breiða út fagnaðarboðskapinn um Jesú Krist, að allir menn komist til iðrunnar og þekkingar á Sannleikanum.

Agnesar fyrsta verk er að tala við fólkið og hlusta á það...þetta voru fyrstu mistök Adams og Evu, að hlusta á hið skapaða í stað Skaparans, eins leitaði Pílatus ráða varðandi Jesú og Barrabas hjá óstöðugum fjöldanum um hvað gera ætti.

Er ekki réttara að leita Hans vilja, álits og ráðs og hvað Hann hefur til málanna að leggja fyrst áður enn annað er leitað? Nei, það virðist ekki skipta máli hvað Guði finnst eða hvað Heilög Ritning kennir. " Mér finnst " og " ég tel " guðfræðin ræður. En Biskup á að vera " maður " fastheldinn við hið áreiðanlega orð, hann á líka að vera einkvæntur..Kirkjan á að snúast um Guð en ekki kirkjan um fólkið.

Hins vegar er ekki rangt að hlusta á hróp fólksins, jafnvel má heyra röddu Guðs af munni fallins manns og ráð Hans finna af tungu hinna snauðu og vesælu. " en leitið fyrst ríkis Hans og réttlætis, þá mun allt annað veitast yður að auki."


mbl.is „Stór áfangi fyrir kirkjuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskup sé fastheldinn við hið áreiðanlega orð

Það er dapurlegt hvað framboð til Biskups er pólítískur valda slagur. Sá sem sækist eftir Biskupsstarfi girnist fagurt hlutverk, sagði Páll Postuli. Þó svo Biblían kveði skýrt á um hvernig Biskup eigi að vera virðist það suma engu skipta innan kirkjunnar. Orð Ritningarinnar vega lítið sem ekkert hjá frambjóðendum, heldur að aðlaga kirkjuna að breyttu samfélagi. Samfélag sem eltir öfga-isma og annarlegar stefnur prédikaðar í háskólanum, vill eitt í dag og annað á morgun, stefnulaust og villuráfandi í afstöðu sinni til flestra mála. Slíkt samfélag á ekki að móta Kirkju Krists heldur Orð Guðs.

Því segir Heilög Ritning að Biskup eigi að vera maður fastheldinn við hið áreiðanlega orð. Hann á að standa vörð um hina heilnæmu kenningu. Páll Postuli sagði að " þann tíma mun bera að menn þola ekki lengur hina heilnæmu kenningu heldur hópa þeir að sé kennurum eftir eigin fýsnum, til að heyra það sem kitlar eyrun. " Kirkjan á að boða mönnum iðrun, afturhvarf frá syndum og kenna þeim að halda ALLT það sem Kristur Jesús kenndi. Kirkjan á að snúast um Guð, en ekki manninn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Óskar Sigurðsson

Höfundur

Óskar Sigurðsson
Óskar Sigurðsson

Óskar Sigurðsson er fæddur í Vestmannaeyjum 23.júlí 1971. Ég er búsettur í Vestmannaeyjum ásamt eiginkonu minni Gunnlaugu R Sigurðardóttur og börnunum Benjamín Elí, Sigurbjörgu Líf og Sigurði Dan.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...n_20_953829
  • ...n_20_953803
  • ...uga_born_20

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband