Vinátta vinstrimanna

Merkilegt hvað íslenskir vinstrimenn hafa átt vingott við marga af verstu iillmennum okkar tíma. Mér er minnistætt sem barn að heyra frá opinberri heimsókn Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar, Guðrúnu Helgadóttur og Svavars Gestssonar til brjálæðings í Rúmeníu, forsetans Ceaucescu. Þau dásömuðu hann og gott ástandið sem var á þeim bænum er heim var komið, en annað kom í ljós. Ceaucescu þessi var einnig kær vinur manns nokkurs sem sveik alþjóða samninga eins og að drekka vatn og lagði lag sitt við hryðjuverkamenn og misnotaði unga drengi. Vinskapur brjálæða forsetans og Arafats var ógeðfelldur eftir lýsingum Ioan Popescu í bókinni Blóðugur Blekkingaleikur. Spillingin og viðurstyggðin náði engum takmörkum. Arafat þessi kyssti svo Steingrím Hermansson þann ágæta mann eftir allt sukkið. Góði Steingrímur var nú reyndar Frammari eins og jú Olafur og Steingrímur vondi voru í upphafi...svo má nú ekki gleyma Trotskíistanum sem er í Seðlabankanum og vel menntaður í Mao kverinu. Ingibjörg Sólrún gerði eins og Arafat og sveik Geir með kossi á þingvöllum lét sér ekkert muna um að fara og heilsa uppá Asaad í Sýrlandi og drekka te í boði fjöldamorðingjans. Svo kostaði hún þjóðina hundruði milljóna við að komast inní örryggisráð SÞ á sama tíma og hún mótmælti aðgerðum NATO í Írak. Eftir blaðamennsku sína hjá Þjóðviljanum og heilsubótagöngu til Keflavíkur fór Össur sömu leið með viðkomu hjá Hamas og lýsti yfir stuðningi við fullveldi Palestínu í nafni Íslands á sama tíma og hann vill selja fullveldi Íslands til ESB styrktaraðila Hamas. Aðdáun vinstrimanna á Sovéskum stjórnarháttum fór ekki framhjá neinum hér áður né heldur andstað þeirra á hersetu Bandaríkjamanna á röltinu til Keflavíkur. Ísland úr NATO og inní ESB.. hvað er að frétta??? .Þeir sem nú sitja við völd á Íslandi fengu flestir innblástur við lesningu Rauða kversins og Stalínskri aðferðafræði við störf á Þjóðviljanum.
Guð blessi Ísland.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Óskar Sigurðsson

Höfundur

Óskar Sigurðsson
Óskar Sigurðsson

Óskar Sigurðsson er fæddur í Vestmannaeyjum 23.júlí 1971. Ég er búsettur í Vestmannaeyjum ásamt eiginkonu minni Gunnlaugu R Sigurðardóttur og börnunum Benjamín Elí, Sigurbjörgu Líf og Sigurði Dan.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...n_20_953829
  • ...n_20_953803
  • ...uga_born_20

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband