Já Vigdís!

Sammála Vigdísi, dómur yfir ríkisstjórninni. Gengistryggingin er ekki bara ólögleg heldur einnig brot á mannréttindum.
mbl.is Ólöglegt að setja lög um verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óljóst?

Dómurinn er kveðinn. Þar er engu við að bæta og ekkert af að taka. " ekki hægt að taka neinar ákvarðanir inni í bankakerfinu um afskriftir eða neitt,“ Hver er að tala um afskriftir? Köllum þetta réttum nöfnum. Leiðrétting á villu, hér var framinn glæpur og búið er að dæma. Annars til hvers er hæstiréttur?

 

 


mbl.is Ekki leyst nema fyrir dómstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skömminni sýndur sómi

Ekki eiga íslensk stjórnvöld hrós skilið í mínum huga heldur last. Þau ættu að skammast sín. Aðrar þjóðir ættu ekki að taka þetta til fyrirmyndar heldur sem víti til varnaðar. Menn vita innst í hjarta sér að þetta er óeðlilegt, samt fremja þeir þetta og gera að auki góðan róm að slíkri breytni hjá öðrum.
mbl.is Hrósar Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Giftast, kvænast eða kúast

Ef sagan er skoðuð gæti þetta þá orðið það sem koma mun á Íslandi? Það sem eitt sinn þótti óhæfa, öfuguggaháttur og svívirðilegt saurlífi þykir í dag vera eðlilegt, og gera menn jafnvel góðan róm að slíkri breytni og sýna skömminni sóma. Munu næstu kynslóðir telja þetta eðlilegt það sem okkur nú þykir hræðilegt og óhugsandi. Guð gerði þau karl og konu að þau yrðu eitt. Ekki hneigðist Adam að dýrunum sem Guð hafði skapað, heldur konunni sem Guð gerði fyrir hann. Guð gerði ekki annan mann heldur konu, því Guð vissi hvað manninum geðjaðist, aðeins maðurinn virðist aldrei sáttur við það sem Guð færir honum.
mbl.is Neyddur til að giftast kú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sonur minn segist vera ljón!

5 ára sonur minn hefur frá því hann byrjaði að tala elskað allt sem tengist ljónum. Hann á búninga, myndir, leikföng osfrv...Ljón heilla hann meir en nokkuð annað. Reyndar er ég pabbi hans í ljónsmerkinu sem gæti skýrt hegðunina. Hann klæðist ljónabúningum, skríður svo á fjórum fótum um öll gólf öskrandi eins og ljón. Hvað er að? Er hann ljón en ekki maður? Kannski í vitlausum líkama? Ætti ég að stofna síðu á FB og sjá hvort aðrir foreldrar séu í svipuðum vanda og ég? Eða er það kannski bara þannig að eins og maður verður ekki belja á að fara inní fjós, eins verður strákur ekki stelpa þó hann fari í kjól.

Seigla í stelpum

Þessar þrjár stelpur sem komu fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sýndu mikla seiglu og samkennd er þær tókust á við að lesa Biblíuna til fjáröflunnar fyrir þá sem minna mega sín. Textinn sem þær völdu var af bestu gerð. Mér finnst það til fyrirmyndar og eftirbreytni og þakka Guði fyrir svona framlag. Þetta er það hugarfar og sá andi sem Ísland þarf. Ég tel að það hefði orðið betra hlutskipti fyrir okkur ef leikararnir sem lásu rannsóknaskýrslu Alþingis í nokkra sólahringa, hefðu lesið úr Heilagari Ritningu fyrir þjóðina. Þannig byrjuðu Ísrealsmenn endureisn þjóðfélagsins eftir herleiðinguna til Babýlon. 

" Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum. Sálmur 119:105 "   

 


Vansæmileg Vinstristjórn

Ég mun án nokkurs vafa segja NEI við ICESAVE lögunum á laugardag. Okkur stendur stuggur af fréttum sem greina frá því að börn víða um heim séu hneppt í þrældóm, vændi og aðra ánauð sökum siðlausra stjórnanda og vansæmilegs ávinnings. Við viljum ekki taka þá áhættu að sagan fari þeim orðum um okkur að við höfum selt komandi kynslóðir í þrældóm með því að segja já, fyrir skammvinna lausn. Hvers vegna er fólk sem vill að börnin okkar borgi skuldir nokkurra sjálfbirginga? Ef skipið sekkur þá björgum börnunum og deyjum með sæmd...Stöndum upp fyrir það sem er rétt og satt, göfugt og gott afspurnar, segjum NEI!!! GUÐ BLESSI ÍSLAND


Hver á skilið að lifa?

Hörmuleg tíðindi um fóstureyðingar halda áfram að heyrast í landi voru. Þykir það eðlilegt og siðlegt að eyða þeim einstaklingi í móðurkviði af því hann er " ekki eins og við hin? " Hver segir að þeir sem framkvæma og samþykkja slíka skelfingu sem fóstureyðing er séu up en ekki down? Er það réttlætanlegt að þeir sem eru öðruvísi en flestir skulu líflátnir strax í móðurkviði til að valda okkur hinum ekki truflun? Hver gefur manninum rétt til að taka líf annars af því hann er öðruvísi? " ÞÚ SKALT EKKI MORÐ FREMJA " Hve mörg okkar hafa ekki reynst foreldrum okkar skapraun? Hve mörg okkar hafa ekki aðra veikleika og takmarkanir sem við óskuðum að væru ekki til staðar? Er það þá réttlætanlegt að losa okkur við þau svo við getum haldi áfram okkar lífi? Hafa ekki allir rétt til lífsins eða? Ég segi NEI við fjöldamorðum og ofbeldi á minnihlutahópum vegna "veikleika" þeirra, elskum þau, styðjum og hlúum að þeim við þörfnumst þeirra og þau okkar. Ég geri mér grein fyrir því að eiga börn með downs einkenni er ekki alltaf auðvelt, þar sem innan fjölskyldunnar er einn slíkur einstaklingur, en hversu mikla blessun hefur það barn ekki fært okkur sem að því standa og í raun þroskað okkur hin gríðalega mikið. Það er í raun ótrulegt að á Íslandi í dag séu svona hræðilegir hlutir sem fóstureyðingar eru að eiga sér stað, miðað við alla þá baráttu gegn einelti, ofbeldi og annari vá sem steðjar að mannfólkinu.    


Trúfrelsið og Trúin

Merkilegt hvað þeir sem trúa því að þeir séu "trúfrjálsir" hafa mikila trú á þeim sem trúa. Allavega fara þeir mikinn í að reyna sannfæra þá sem trúa um að trú sé vitlaus og óþörf og trúa því að þeir geti snúið trúuðum frá sinni trú til þeirrar trúar að ekki sé trú. Heilög Ritning segir í Hebreabréfinu " Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá " Þannig hljóta þeir sem telja sig trúfrjálsa, samkvæmt þessu versi, að vera fullvissir og sannfærðir í því sem þeir " trúa " segja og boða og þar með orðnir trúaðir, þ.e.a.s. ef þeir eru þá sannfærðir eftir allt í trú sinni. Allavega getur engin talið annan af þeirri sannfæringu og reynslu sem hann hefur orðið fyrir, nema þá að viðkomandi ljúgi að sjálfum sér og öðrum. Ég persónulega er þess alveg fullviss að hvorki dauði, líf, englar, tignir,, yfirstandandi, ókomið, kraftar, hæð, dýpt, né nokkuð annað skapað geti gert mig viðskila við Kærleika Guðs sem birtist í Kristi Jesú, Drottni vorum. Því trúi ég, vegna þess að það hef ég reynt og orðið vitni að og þetta hnoss verður ekki frá mér tekið. Því eitt er víst að þótt himinn og jörð farist, mennirnir bregðist, efnahgurinn hrynji og allt annað brestur, þá stendur aðeins eitt eftir, TRÚIN...   


Borgarahreyfingin og siðmennt

Borgarahreyfingin sem í upphafi þings hafnaði blessun Guðs frá kirkjunnarþjónum og þeirri áralöngu hefð að sækja messu við þingsetningu. Þeir töldu ekki þörf á að blanda Guði inní þingið en völdu frekar ráðgjöf siðmenntar. Þessi er svo útkoman, allt er í upplausn og óeiningu, stefnan óljós og óvissan ríkir. Þeir sem greiddu Borgarhreyfingunni atkvæði sitt hefur verið gefið langt nef Gosa og misboðið. Þetta er ávöxtur siðmenntar sem telur sig geta byggt siðferði sitt á annarlegum grunni í stað þess að byggja á Bjargi aldanna. Þeir sem hafna blessun Guðs yfir störf sín geta aldrei fundið fótum sínum farsæla braut.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Óskar Sigurðsson

Höfundur

Óskar Sigurðsson
Óskar Sigurðsson

Óskar Sigurðsson er fæddur í Vestmannaeyjum 23.júlí 1971. Ég er búsettur í Vestmannaeyjum ásamt eiginkonu minni Gunnlaugu R Sigurðardóttur og börnunum Benjamín Elí, Sigurbjörgu Líf og Sigurði Dan.

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Nýjustu myndir

  • ...n_20_953829
  • ...n_20_953803
  • ...uga_born_20

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband