14.3.2012 | 00:15
Inn eða út úr skápnum
Einkennilegir þættir á MBL sjónvarp kallast " út úr skápnum. " Skil ekki af hverju einn sérréttindahópur er kallaður út úr skápnum til að segja reynslusögur sínar um hversu erfitt var að komast út úr skápnum og fá viðurkenningu hneigða sinna í samfélaginu. Maðurinn hneigist af ýmsu, réttu og röngu, góðu og slæmu og til eru hneigðir sem ekki þola ljósið. Til eru hneigðir sem menn glíma við inní lokuðum skápum sínum og voga sér ekki út úr skápnum í ótta við að fá ekki hneigðir sínar viðurkenndar. Sagt er að einhver sé bókhneigður. En hvernig bók hneigist hann? Til eru andstyggilegar og skaðlegar bókmenntir sem næra hneigðir hugspilltra manna inní lokuðum skápum og þeir hætta sér ekki út úr skápnum því samfélagið hafnar þeim. En eigum við von á því að þeir fái skilning einn daginn og geti komið út úr skápnum og fengið samþykki almennings fyrir afbrigðilegar hneigðir sínar, þó svo í dag það virðist vera útilokað? En hneigist nú maður að Heilagri Ritningu og lætur orð hennar sig varða og skipta máli kemur út úr "skápnum" og vitnar í orð hennar og um trú sína er hann ofsóttur og hrakyrtur, talinn hættulegur og fær lítinn sem engan skilning frá samfélaginu. Í gegnum aldirnar hafa Biblíuhneigðir einstaklingar verið hataðir og smánaðir fyrir það eitt að trúa orðum Ritningarinnar. En það hefur ekki haldið þeim inní skápnum, því fullvissan og sannfæringin er slík að hún þarfnat ekki viðurkenningar almennings til að lifa, heldur að komast út úr skápnum og vtina um lífið svo fleiri megi lifa.
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Um bloggið
Óskar Sigurðsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- benediktae
- westurfari
- bookiceland
- binntho
- ek
- fosterinn
- muggi69
- zeriaph
- tilveran-i-esb
- coke
- hannesgi
- helgigunnars
- hjaltirunar
- hognihilm64
- ghordur
- ingaghall
- jensgud
- jonsullenberger
- bassinn
- kristbjorg
- kiddikef
- krist
- marinogn
- pallvil
- rosaadalsteinsdottir
- nafar
- logos
- dressmann
- sjonsson
- sigurdurkari
- snorribetel
- stebbifr
- viggojorgens
- viktor
- postdoc
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.